Ólafur Margeirsson snýr aftur í þáttinn. Ólafur er með doktorsgráðu í hagfræði og fjallar mikið um húsnæðismál á Íslandi á Patreon reikningi sínum.
Að þessu sinni er rætt stöðu efnahagsmála í víðu samhengi. Rætt er um áform ríkisstjórnarinnar að byggja 35.000 nýjar íbúðir á næstu 10 árum sem nú virðist vera möguleiki þrátt fyrir að það hafi talist ómögulegt þegar að Sósíalistaflokkurinn lagði það fram fyrir síðustu kosningar. Auk þess er rætt um vaxandi verðbólgu, mögulega kreppu bæði á Íslandi og í Evrópu og margt fleira.
view more