Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 5. febrúar.
Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir fótboltafréttir vikunnar. Formannsslagurinn, undirbúningstímabilið, þjálfaramál, enski boltinn og fleira koma við sögu.
Sóknarmaðurinn Andri Rúnar Bjarnason kemur í þáttinn en hann er mættur aftur úr atvinnumennskunni erlendis og ætlar sér stóra hluti með ÍBV í sumar.
Þá er Vanda Sigurgeirsdóttir formaður KSÍ á línunni en hún býður sig áfram fram í formannsstólinn. Það eru þrjár vikur í ársþing.
view more