Aron og Gunni gerðu upp umferð 26 fyrir leik Arsenal og Wolves. Salah skilaði heldur betur sem þrefaldur fyrirliði hjá þorra þjóðarinnar í Fantasy samfélaginu með þá 84 stig. Burnley vann tvo leiki og hélt hreinu.
Aðallega ræddu þeir samt hvað á að gera í umferðum 27-30, en þær eru allar með óhefðbundinn leikjafjölda.
- Eiga allir að taka Free Hit í umferð 27?
- Að hverju þarf að huga fyrir umferð 30?
- Úr hvaða liðum á að kaupa menn þess á milli?
- Hvaða leikmenn ættu að vera í öllum Free Hit liðum í umferð 27?
Þetta og allt annað í nýjasta þættinum af Fantabrögðum. Takk fyrir að hlusta og styrkja okkur á Patreon
Create your
podcast in
minutes
It is Free