Nú þegar ég er kominn úr öðrum verkefnum og Þú veist betur að fara aftur af stað langaði mig til að taka saman alls kyns búta úr viðtölum sem ég tók fyrir þættina Með verbúðina á heilanum um hvernig það er að sinna hinum ýmsu hlutverkum varðandi kvikmyndagerð. Það getur verið að sum ykkar hafi heyrt eitthvað af þessu, þó hér séu á ferðinni líka óklippt viðtöl sem rötuðu ekki í heild sinni í þættina á sínum tíma, en mig langaði þó til að kynna þessi efnistök fyrir þeim sem ekki hefðu náð þessu á sínum tíma því mér fannst þetta sjálfum svo áhugavert allt saman.
Umsjón: Atli Már Steinarsson
view more