Í þættinum er meðal annars fjallað um síðustu vikuna fyrir jól, sem nefnd hefur verið augnvika, staurvika eða vitlausa vika. Þá er sagt að fólk hafi notað svonefnda vökustaura eða augnteprur til að halda sér vakandi og halda augunum opnum til að ljúka jólaundirbúningnum. Jólagjafir eins og stressskynjarar, fótanuddtæki og sjónvarpsleiktæki koma einnig við sögu, sem og orðin jólaær og fátækraþurrkur.
view more