Sægur er eitt fjölmargra skemmtilegra safnheita í íslensku máli. Í orðabókinni er það skýrt með orðinu mergð, sem er annað gott safnheiti. Bæði orðin merkja fjöldi eða aragrúi. Í þættinum er fjallað um safnheiti í íslensku og líka í ensku, sem býr yfir enn fjölbreyttari safnheitum en íslenska. Einnig eru rifjaðar upp fyrstu tilraunir til að gefa þeim farartækjum íslensk heiti sem nú kallast í daglegu tali bílar. Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir.
view more