Votlendi er okkur hugleikið í þættinum í dag en áður en við setjum á okkur stígvélin og vöðum, fyrst út í mýrina og síðan út á blána, skjótumst við upp í himingeiminn og förum í hringferð kringum Mars með geimmyndavélinni High Rise, sem myndaði Mars. Myndirnar komu út í bók og þar eru íslenskir skýringartextar með nokkrum myndum. 24 mál voru notuð við gerð bókarinnar. Hverri mynd fylgir texti á ensku og einu hinna tungumálanna tuttugu og þriggja. Sævar Helgi Bragason samdi textana en hann hefur lagt sig fram um að kenna íslenskum börnum íslenskan orðaforða yfir stjörnuhiminninn um leið og hann fræðir þau um himingeiminn.
view more