Þvottahúsið og Alkastið b%$#es
Society & Culture
Þvottahúsið#86 Alda Karen er svo nóg að það hálfa væri nóg
Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarpinu Þvottahúsið er engin önnur en fjöltalentinn Alda Karen Hjaltalín.
Alda Karen hefur búið um árabil í New York þar sem hún starfar við persónulega ráðgjöf og við að þjónusta fyrirtæki við sölu og markaðssetningu.
Alda sem hér áður fyrr var hún sölu- og markaðsstjóri hjá Saga Film og seinna hjá samfélagsmiðlafyrirtækinu Ghostlamp starfar í dag ekki aðeins sem ráðgjafi heldur er hún einnig rithöfundur og vinsæll fyrirlesari.
Hún reis upp á sjónarsviðið á Íslandi fyrir nokkrum árum með fyrirlestrum sem hún hélt bæði í Hörpunni og í Laugardalshöll fyrir fullu húsi. Hún segist hafa áttað sig á sínum fyrsta fyrilestri hve mikið af markaðsmálum og atvinnuframmistöðu almennt snérist í raun um andlegan þroska og hugrækt. Í Laugardalshöllinni hélt hún fyrirlestur í kjölfar áfalls innan fjölskyldunar og rann allur ágóði til Pieta samtakana. Eitthvað í því tengt sagði hún í viðtali hjá Íslandi í dag að hún sjálf liði sjálf eins og hún sé fullkomnlega nóg og segi það við sjálfan sig sem einkonar forittun á eigin huga sem svo virðsit virka því Öldu er bókstaflega allir vegir færir. Eitthvað fór þetta fyrir brjóstið á fagmenntuðum sálfræðingum sem að tóku málið fyrir og var henni svo mætt í eftirminnilegum Kastljósþætti þar sem fulltrúi félags sálfræðinga Hafrún Kristjánsdóttir mætti Öldu undir umsjón Einars Þorsteinssonar sem nú hefur snúið sér að stjórnmálum.
Create your
podcast in
minutes
It is Free