Besta deildin byrjar að rúlla þar næsta mánudag og það styttist í annan endann á upphitun okkar fyrir mótið. Víkingum er spáð þriðja sæti deildarinnar.
Tómas Guðmundsson, fyrrum leikmaður liðsins, kíkti við á skrifstofu Fótbolta.net í dag og fór yfir málin í Fossvoginum. Hann lagði skóna á hilluna eftir tímabilið 2021 þegar Víkingar urðu tvöfaldir meistarar.
Þá var Viktor Örlygur Andrason, miðjumaður Víkinga, á línunni þar sem hann fór aðeins yfir síðasta tímabil og undirbúningsvinnuna í vetur.
view more