Cesar Alonzo Barrera er lýrískur stórtenór frá Venesúela, óperusöngvari, hljómsveitarstjóri og að auki píanóstillir. Cesar hefur búið á Íslandi í hálft ár og bíður niðurstöðu Útlendingastofnunar um alþjóðlega vernd. Cesar kemur fram á tónleikaröð Sönghátíðar Hafnarborgar og Thelma Hrönn Sigurdórsdóttir ræddi við hann og Guðrúnu Jóhönnu Ólafsdóttur, söngkonu og vinnufélaga Cesars. Við fáum bókarýni frá Grétu Sigríði Einarsdóttur en hún var að lesa nýja íslenska bók, Læknir verður til eftir Henrik Geir Garcia. Henrik Geir er læknir með átta ára starfsreynslu og hefur starfað á þremur sjúkrahúsum og yfir tuttugu heilsugæslustöðvum um land allt. Læknir verður til er skálsdaga en byggir á reynslu hans af því að starfa í heilbirgðiskerfi sem löngu er komið að þolmörkum. Í D-sal Hafnarhússins er Breiðholtið alltumlykjandi en Dýrfinna Benita Basalan hefur þar sett upp sýninguna Langavitleysa/Cronic pain. Dýrfinna ólst upp í Breiðholti og í verkunum beinir hún sjónum sínum að daglegu lífi þar í hverfinu, í blokkunum og leikvöllunum og sérstaklega jaðarsettum hópum samfélagsins. Spurningin sem liggur í loftinu snýr að því hvort hægt sé að finna jafnvægi í misskiptum heimi? Við lítum við í D-salnum í þætti dagsins.
view more