Við kynnum okkur kolefnismarkaði sem eru alls konar, og í sókn bæði hér á landi og erlendis. Hrafnhildur Bragadóttir aðjúnkt við Lagadeild HÓ, er vel heima í því máli og skipuleggur málþing sem fer fram á Þjóðminjasafninu á morgun. Hvers vegna vill UNESCO, ásamt ýmsum öðrum, svo gott sem banna snjalltæki í skólum? Hermundur Sigmundsson prófessor í lífeðlisfræðilegri sálfræði fer yfir hvaða áhrif snjalltæki hafa á börnin okkar, hvað gerist raunverulega í heilanum á þeim við notkun slíkra tækja og hvernig best er fyrir kennslusamfélagið og foreldra að bregðast við í ljósri nýjustu rannsókna. Fanney Birna Jónsdóttir ræðir við hann. Í lok þáttar heyrum við pistil frá Páli Líndal umhverfissálfræðingi, þetta er endurtekinn pistill frá síðastliðnu hausti en Páll mætir hér með glænýja pistla frá og með næsta þriðjudegi.
view more