10. Félagsleg heilsa. Hrefna Hugosdóttir og Ragnhildur Bjarkadóttir
Í þættinum ræðir Erla við Hrefnu Hugósdóttur, hjúkrunarfræðing og Ragnhildi Bjarkadóttur, sálfræðing um félagslega heilsu og mikilvægi hennar.
Þær stöllur eru einnig fjölskyldufræðingar og stofnuðu Auðnast árið 2014 í þeim tilgangi að þjónusta atvinnulífið um allt er varðar heilsu og félagslegt öryggi starfsfólks. Sama ár var Auðnast klíník opnuð en þar er boðið upp á þverfaglega meðferð, handleiðslu og ráðgjöf fyrir einstaklinga, fjölskyldur og hópa við úrlausn mála.
Skilgreining Alþjóðaheilbrigðisstofnunar á heilsu er eftirfarandi: Heilsa er líkamleg, andleg og félagsleg vellíðan en ekki einungis það að vera laus við sjúkdóma og örorku (WHO, 1948).
Félagslega heilsan er því miður oft sá þáttur sem gleymist að rækta, en skiptir alveg gríðalega miklu máli og því er mikilvægt að ræða hana og verða meðvitaðri um okkar þátt í eigin heilsu og heilsu annarra.
Áhugasamir geta einnig fylgt Auðnast á Instagram
p.s. Ekki gleyma að gefa þættinum og hlaðvarpinu einkunn (5 stjörnur ef ykkur líkar vel!)
Sendu HeilsuErlu skilaboð
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Create your
podcast in
minutes
It is Free