Í þættinum ræðir Erla við Áslaugu Kristjánsdóttur, hjúkrunarfræðing, kynfræðing og kynlífsráðgjafa um kynlíf og kynheilbrigði og áhrif þess á heilsu okkar.
Áslaug er forvitin um lífið og vissi snemma hvað hún ætlaði að verða þegar hún yrði stór og stóð við það. Hún starfar sem kynlífsráðgjafi og aðstoðar fólk við að vera í ástarsambandi sem færir því hamingju og gott kynlíf. Hún vill hálpa fólki að þroskast, skora bábiljur á hólm og efla með því kjark.
Áslaug gaf nýverið út bókina Lífið er kynlíf- handbók kynfræðings um langtímasambönd. Þetta er bók sem öll pör þurfa að eiga og lesa aftur og aftur.
Eins og Áslaug nefnir í bók sinni þá þykir oft dónalegt að tala um kynlíf og gálgahúmor er notaður til að verja sig ef það ber á góma. Því er frekar gantast með þennan mikilvæga hluta af okkur í stað þess að ræða hann af alvöru.
Áhugasamir geta einnig fylgt Áslaugu á Instagram
Sendu HeilsuErlu skilaboð
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Create your
podcast in
minutes
It is Free