6. Geðheilbrigði á vinnustað. Helena Jónsdóttir
Í þættinum ræðir Erla við Helenu Jónsdóttur, klíniskan sálfræðing og stofnanda og eiganda Mental ráðgjafar, um það hvernig geðheilbrigði og vellíðan starfsfólks er samfélagsleg ábyrgð en ekki einkamál hvers og eins.
Þær stöllur ræða um hvers vegna það sé mikilvægt að stjórnendur taki geðheilbrigðismál föstum tökum og hafi tæki og tól til þess að takast á við þennan vanda auk þess að sýna sjálfir gott fordæmi. Þær ræða einnig um skilgreininguna á heilsu og geðheilsbrigði og hvað sé hægt að gera til þess að hafa jákvæð áhrif á geðheilsu samstarfsmanna og samferðafólks.
Helena er með mjög víðtæka reynslu og bakgrunn. Auk þess að veita sálfræðiþjónustu um árabil hefur Helena stýrt geðheilbrigðismálum víða í Mið-Austurlöndum og Afríku, starfað við rannsóknir, ráðgjöf og verkefnastjórnun og verið framkvæmdastjóri í fjármálafyrirtæki. Helena er einn af stofnendum og fyrsti skólastjóri Lýðskólans á Flateyri.
Þessi fjölbreytta reynsla hefur leitt hana að því að helga sig geðheilbrigði á vinnustöðum með stofnun Mental. Þar kemur þetta allt saman: traust fræðileg undirstaða, kraftur og hlýja og vilji til að fara ótroðnar slóðir til að ná háleitum markmiðum eins og að gjörbylta því hvernig við tölum um og tökumst á við geðheilsu á vinnustöðum, að fyrirtæki setji starfsfólkið og geðheilsu þess í fyrsta sæti og að fyrirtæki hafi skýra sýn í geðheilbrigðismálum á vinnustöðum.
Áhugasamir geta einnig fylgt Mental ráðgjöf á Instagram
Sendu HeilsuErlu skilaboð
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Create your
podcast in
minutes
It is Free