11. Sköpunargleði og heilsa. Birna Dröfn Birgisdóttir
Í þættinum ræðir Erla við Birnu Dröfn Birgisdóttur, sköpunargleðifræðing um það hvernig sköpunargleði getur haft áhrif á heilsu okkar og hvernig heilsa okkar getur haft áhrif á sköpunargleði.
Birna er er doktorsnemi í Háskólanum í Reykjavík þar sem hún rannsakar sköpunargleði og hvernig leiðtogastíllinn þjónandi forysta hefur áhrif á sköpunargleði starfsmanna.
Birna hefur safnað að sér ýmsum tólum og upplýsingum sem tengjast sköpunargleði ásamt því að hafa lært markþjálfun, mannauðsstjórnun, NLP (neuro linguistic programming), viðskiptafræði og er með meistaragráðu í alþjóðaviðskiptum og þessi þekking er mikilvægur grunnur sem hún byggir á til þess að aðstoða fólk og fyrirtæki við að nýta og efla sköpunargleði sína og nýsköpun.
Birna býður upp á þjónustu fyrir einstaklinga og fyrirtæki á skopunargledi.is
Áhugasamir geta einnig fylgt Birnu og Sköpunargleði.is á Instagram
p.s. Ekki gleyma að gefa þættinum og hlaðvarpinu einkunn (5 stjörnur ef ykkur líkar vel!)
Sendu HeilsuErlu skilaboð
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Create your
podcast in
minutes
It is Free