Ég minni hlustendur hlaðvarpsins Með lífið í lúkunum að með því að nota kóðann "heilsuerla" og fáið þið 20% afslátt af Under Armour og Mizuno vörum í Altis Bæjarhrauni, Altis.is og Under Armour verslun í Kringlunni út október 2023.
Í þættinum ræðir Erla við Björn Berg Gunnarsson, viðskiptafræðing með meiru um fjárhagslega heilsu og hvað fjárhagslegt heilbrigði er og hvað það er ekki og hvernig fjármál geta haft áhrif á almenna heilsu okkar.
Björn bendir á mikilvægi þess að nálgast fjármál þannig að við eigum í heilbrigðu sambandi við peninga og tökum fjármál okkar alvarlega. Vera til dæmis búin að búa okkur undir eitthvað í stað þess að ,,bregðast bara við" óvæntum og /eða skipulögðum uppákomum um leið og þær gerast.
Björn er afkastamikill greina- og pistlahöfundur í prent- og vefmiðlum og reglulegur gestur í útvarpi og sjónvarpi sem álitsgjafi og til að útskýra fjármál og efnahagsmál á einföldu og skýru máli. Hann hefur vakið athygli fyrir létta og aðgengilega framsögu og framsetningu og er eftirsóttur kennari og fyrirlesari hjá endurmenntunarstöðvum, skólum og stofnunum.
Áhugasamir geta fylgt Birni á bjornberg.is og á Instagram
Sendu HeilsuErlu skilaboð
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Create your
podcast in
minutes
It is Free