Brotkast - Brot úr þáttum og opnir þættir
Arts:Performing Arts
Spjallið með Frosta Logasyni | S01E52 | Almenningur þarf að heyra hina hliðina líka
Erna Ýr Öldudóttir blaðamaður er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni. Hún er nýkomin heim frá Úkraínu þar sem hún fylgdist með kosningum á hernumdu svæðum í Kherson-héraði. Þar var verið að kjósa til embætta héraðsstjóra, á héraðsþing og í ýmis borgar- og bæjarráð. Íslensk stjórnvöld hafa fordæmt kosningarnar og segja þær í trássi við alþjóðalög, eins og allur stríðsrekstur Rússlands í Úkraínu. Þá hefur íslenska Utanríkisráðuneytið sagt ekki útilokað að erlend ríki muni grípa til aðgerða gegn Ernu og félaga hennar Konráði Magnússyni sem var með í för. Hægt er að horfa og hlusta á þáttinn í fullri lengd með því að kaupa áskrift að öllum þáttunum Spjallið með Frosta Logasyni, ásamt fleiri þáttum, inni á brotkast.is fyrir aðeins 1.669 kr. á mánuði.
Create your
podcast in
minutes
It is Free