#14. Heildræn heilsa. Hildur Kristín Sveinsdóttir
Í þættinum ræðir Erla við Hildi Kristínu Sveinsdóttur, sjúkraþjálfara og eiganda Sjúkrasport (Sjúkraþjálfunin í Sporthúsinu).
Hildur Kristín ræðir um starf sjúkraþjálfara frá sínu sjónarhorni og hvernig henni þætti réttara að stéttin héti ,,stoðkerfisfræðingar" sem er meira lýsandi fyrir hennar starf. Hún vinnur mjög heildrænt og tekur inn í myndina alla ,,vinkla" sem hafa áhrif á heilsuna þegar hún vinnur með skjólstæðinga sína og segir í viðtalinu frá mjög fróðlegum dæmum um hvað getur haft áhrif á líkamlega heilsu okkar.
Hildur er menntuð sem bæði íþróttakennari og sjúkraþjálfari og hefur sótt fjölda námskeiða á sínum langa starfsferli. Þessa miklu reynslu hefur hún nýtt til að vinna með stoðkerfi almennings og einnig mikið með afreksfólki í íþróttum .
Áhugasamir geta fylgt Hildi og Sjúkrasport á Instagram
Sendu HeilsuErlu skilaboð
Ert þú ekki örugglega að fylgja HeilsuErlu á Instagram?
Create your
podcast in
minutes
It is Free