20. Riddari hringavitleysunnar. Geðhvörf og heilsa. Ágúst Kristján Steinarsson
Í þættinum ræðir Erla við Ágúst Kristján Steinarsson stjórnendaráðgjafa, rithöfund, tónlistarmann og fyrirlesara um magnaða lífsreynslu hans og baráttu við geðhvörf, geðrof, sáraristilbólgur og krabbamein.
Fyrir um tíu árum síðan gekk Ágúst Kristján í gegnum sína alvarlegustu maníu þar sem hann endaði nakinn á torgi í Kaupmannahöfn. Eftir 14 ára rússíbanareið með síendurteknum spítalavistum og fleiri áföllum hafði hann litla von um að lífið gæti orðið gott, hvað þá í jafnvægi. Það andstæða gerðist þó og hann segir að síðustu tíu ár hafi verið mögnuð og hann verið knúinn áfram af því að láta gott af sér leiða.
Ágúst Kristján gaf út bókina Riddarar hringavitleysunnar árið 2018 sem er mögnuð frásögn af lífsreynslu hans. Bókin er sett upp eins og skáldsaga og upplifa lesendur hana því gjarnan jafn fyndna og hún er átakanleg, sem gerir hana svo aðgengilega. Auk þess hefur Ágúst frætt starfsfólk geðdeilda, háskólanema, ýmis hagsmunasamtök og vinnustaði. Áhugasamir um fyrirlestra Ágústar geta fundið upplýsingar hér.
Fyrir Ágústi er heilsa gjöf, gjöf sem er ekki sjálfsögð og í þættinum segir hann frá því hvað það er mikilvægt að lifa í eigin takti og hvernig hann hugar að sinni heilsu.
Sendu HeilsuErlu skilaboð
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!
Create your
podcast in
minutes
It is Free