Neysla nær vissu hámarki fyrir jól, fólk þræðir búðir eða vefverslanir og eyðir peningum í gríð og erg, í allri ösinni er miklvægt að huga að réttindum sínum og það á svo sem ekkert síður við eftir jól, þegar það á að fara að skila eða nýta gjafabréf. Við ræðum neytendamál sem snúa að jólunum við Brynhildi Pétursdóttur hjá neytendasamtökunum. Nú þegar þrír dagar eru til jóla er í nógu að snúast hjá Hjálpræðishernum á Íslandi. Stór jólamáltíð á morgun, þúsund jólagjafir í innpökkun og sjálfboðaliðar að safna framlögum og selja Herópið. Herdís Kristinsdóttir er svæðisforingi Hjálpræðishersins á Íslandi. Við fáum svo umhverfispistil frá Finni Ricart Andrasyni í lok þáttar.
view more