Snorri Másson stýrir miðlinum Ritstjóri en miðillinn hefur náð mikilli athygli allt frá því að hann hóf göngu sína. Í þessum þætti er rætt um stöðu íslenskrar tungu og menningar ásamt þeim spurningum sem vert er að spyrja sig á tímum mikilla samfélagsbreytinga.
Þessum spurningum er meðal annars svarað:
- Hvaða áhrif hefur bág fæðingartíðni Íslendinga?
- Er rétttrúnaðurinn liðinn undir lok?
- Afhverju hætti Ritstjórinn á Stöð 2?
- Munum við ávallt reiða okkur á Bandaríkin?
- Er Katrín Jakobsdóttir sammála kjósendum VG?
Hlaðvarpið má finna í heild sinni á www.pardus.is/einpaeling