Við fáum að heyra allt um nýstofnað fagfélag um mengun á Íslandi - FUMÍS. Félagið einbeitir sér að mengun í jarðvegi og vatni og vill stuðla að aukinni þekkingu á góðum og vönduðum vinnubrögðum í þeim málum. Formaður félagsins Erla Guðrún Hafsteinsdóttir ræðir við okkur.
Nikótínpúðar hafa á örfáum árum náð mikilli útbreiðslu og nú er svo komið að stór hluti ungs fólks notar þá að staðaldri - hafa gömlu tóbaksrisarnir aftur náð traustataki á almenningi? Við ræðum við Auði Hermannsdóttur, aðjúnkt við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, um markaðssigur nikótínpúðanna.
Anna Sigríður Þráinsdóttir, málfarsráðunautur RÚV, kemur til okkar í málfarsspjall um orð sem einungis eru notuð í einu samhengi t.d. mjalla, hraðberg og harðbakkann sem í slær.
view more