Brotkast - Brot úr þáttum og opnir þættir
Arts:Performing Arts
Spjallið með Frosta Logasyni | S02E01 | Öryggisventill í mikilvægustu málum þjóðarinnar | Þátturinn í heild sinni
Arnar Þór Jónsson lögmaður hefur ákveðið að gefa kost á sér til embættis forseta Íslands. Hann segir þjóðfélagið standa á krossgötum varðandi sjálfstæði sitt þar sem fulltrúalýðræðið sé í raun hætt að virka og þingmenn gæti ekki lengur að hagsmunum þjóðarinnar í störfum sínum. Hann hefur áhyggjur af síauknu valdaframsali til alþjóðastofnanna og nefnir í því samhengi mál eins og Bókun 35, Orkupakkann og lögleiðingu viðskiptakerfis ESB með losunarheimildir. Arnar telur að þróunin undanfarin misseri sýni að forseti Íslands þurfi að vera einskonar öryggisventil í mikilvægustu málum þjóðarinnar og segist hann tilbúinn til þess að vera sá aðili ef að á reyni. Ekki missa af þessum magnaða þætti af Spjallinu með Frosta Logasyni. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
Create your
podcast in
minutes
It is Free