Árni Helgason, fyrsti fyndni lögfræðingurinn (að mati Matta), er gestur Spekinga þessa vikuna. Lögmaður, uppistandari, pistlahöfundur en fyrst og fremst hlaðvarpsstjarna. Þegar Árni er ekki að loka stórum samningum, semja langar vandaðar skýrslur eða brainstorma um næsta uppistand/sjónvarpsþátt, stýrir hann Hisminu með Grétari sínum Theodórssyni. Hismið hóf göngu sína á árinu 2013 og sjö+ ár í íslenskum hlaðvarpsárum eru 70 ár í mannsárum. Það gerir Hismisbáknið að einum farsælasta hlaðvarpsþætti landsins og ekki einu sinni Roof hefur heimild til að gogga í eða taka slíka stóra risa af dagskrá.
Hlustendur eru væntanlega þyrstir í uppgjör stóra konfektmolamálsins en það fór fram í sérstöku bónus efni í lok þáttar. Sverðin voru kannsi ekki slíðruð en drög voru gerð að vopnahléi.
Upptökur fóru fram í Nóa Síríus stúdíói Podcaststöðvarinnar og Spekingar eru í boði Áberandi og 250 lita.
Create your
podcast in
minutes
It is Free