#60 Stefán Pálsson - Jólabjór 2.0 (fyrri hluti)
Nóvember er genginn rúmlega hálfa leið og það þýðir bara eitt. Jólabjórinn skreið í hillur Vínbúðarinnar þann 14. nóvember sl. og Spekingar brugðust ekki skyldum sínum að taka hann út. Eðli málsins samkvæmt var gestur þáttarins Stefán Pálsson og leiddi hann okkur í gegn um flóru og fjölbreytileika bjóranna. Þess má geta að Stefán leiddi jafnframt jólabjórsþátt Spekinga fyrir ári síðan.
Spekingum til halds og trausts voru Kári Sigurðsson og Tómas Magnús Þórhallsson og eiga miklar þakkir skildar.
Þátturinn er í 2 hlutum.
Create your
podcast in
minutes
It is Free