Páll Sævar Guðjónsson, „Röddin“, er gestur Spekinga þessa vikuna. Líklega hafa vel flestir Íslendingar heyrt guðdómlega rödd Páls í hátölurum Laugardalsvallar eða Laugardalshallar. Þegar Páll er ekki að stýra þjóðarleikvöngum okkar eða Frostaskjólinu þá lýsir hann pílunni á Stöð 2 Sport eða sinnir hinum ýmsu félagsstörfum sem eru honum hugleikin. Við fórum vítt og breitt yfir völlinn og komumst meðal annars að því að Ronaldo er góður drengur inn við beinið.
Upptökur fóru fram í Nóa Síríus stúdíói Podcaststöðvarinnar og Spekingar eru í boði Áberandi og 250 lita.
Create your
podcast in
minutes
It is Free