Framundan eru Alþingiskosningar á stærstu smáeyju í heiminum. Spekingar hafa boðið fulltrúum allra flokka í spjall til að kynnast frambjóðendum.
Fyrsti gestur er Guðmundur Franklín Jónsson úr Frjálslynda lýðræðisflokknum. Ferill Guðmundar er ævintýri líkastur og fáir byggja á þeirri reynslu sem Guðmundur hefur aflað sér. Léttur og skemmtilegur maður sem er fylginn sér, hefur sterkar hugsjónir og ætlar að byggja betra Ísland.
Upptökur fóru fram í Nóa Síríus stúdíói Podcaststöðvarinnar og Spekingar eru í boði Áberandi.
Create your
podcast in
minutes
It is Free