Í þessum þætti ætlum við að fjalla um Freeman og Bible fjölskyldurnar, en þar er sérstaklega fjallað um Ashley Freeman og Lauria Bible, sem voru að fagna sextán ára afmælinu hennar Ashley þegar óhugnanlegur atburður átti sér stað. Rúmum tuttugu árum seinna, hefur enn ekki náðst að staðsetja stelpurnar né vita fyrir vissu um afdrif þeirra. Í seinna málinu tökum við fyrir Lin fjölskylduna, en hún settist að í Ástralíu, stofnaði fjölskyldufyrirtæki og tryggði þar með öruggar tekjur inn á heimilið. Þeim leið mjög vel þar og eitt kvöldið breyttist ástralski draumurinn þeirra í martröð. Fyrir þá sem eru rooooosalega viðkvæmir þá setjum við TW við seinna málið þar sem einnig er um að ræða dauða barna.
Við minnum á auka þáttinn sem kemur út 12 desember!
& einnig á að við erum á Instagram og Facebook: Morðskúrinn og með grúbbu: Morðskúrinn - umræðuhópur en þar setjum við myndir og ræðum meðal annars önnur mega skemmtileg mál - ásamt því að setja inn uppfærslur og annað slíkt!
Create your
podcast in
minutes
It is Free