Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin.
Í þessum þætti:
Haraldur Benediktsson alþingismaður og Kristrún Frostadóttir hagfræðingur um efnahagsmál en Kristrún segir þróun á eignamarkaði hafa verið með öllu fyrirsjáanleg.
Ari Trausti Guðmundsson jarðfræðingur og alþingismaður um jarðhræringar á Reykjanesinu en hann segir líkur á eldgosi verulegar miðað við núverandi stöðu.
Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins og Jökull Sólberg Auðunsson frumkvöðull um Ísland eftir Covid en skortur virðist vera á opinberri iðnaðarstefnu.
Erna Bjarnadóttir um rannsókn krabbameinssýna en hún segir rannsókn krabbameinssýna eigi best heima hér á landi.
Create your
podcast in
minutes
It is Free